Ég veit að það er allt of langt síðan síðast, en maður er bara alltaf svo latur við að setjast niður og koma einhverjum skrifum af stað. Þess vegna er líka mjög hagstætt að byrja á því að fylla bloggfærslu af nokkrum myndum. Hér má sjá myndir frá Philadelphiu, PA og ýmsum stöðum New York borgar eða úr Westchesterfylki þar sem ég bý.
Síðustu vikur hafa verið mjög góðar, þó kalt sé orðið í veðri og flest öll lauf fallin af trjánum. En um miðjan október skellti ég mér í dagsferð til Philadelphiu. Philadelphia er mjög notarleg borg, en þó svo allt öðruvísi andrúmsloft heldur en í NY. Eflaust meira Amerískt þar heldur en í innflytjendaborginni NY. Ég skoðaði helstu byggingar tengdar helstu menningarviðburðum Ameríku, eins og við var að búast. Svosem ekki margt annað að sjá þar. En ég naut mín vel þar, það var æðislegt veður og fullt af litlum görðum til að setjast í og virða umhverfið fyrir sér.
Helgin eftir það kom svo hluti af fjölskyldunni og áttum við dýrmætar stundir saman í New York City. Það var ótrúlega gott að eyða tíma með fjölskyldunni sinni, þó það hafi ekki verið nema tæpir þrír dagar. Ég sá til þess að þau keyrðu sig gjörsamlega út með stanslausri göngu þvert yfir borgina, svona svo að þau myndu alveg örugglega sjá allt! Og sumt oftar en einu sinni!

Ég átti einnig mjög góða helgi með Únu og Þórhöllu, en við eyddum saman hluta af Halloween helginni hérna í New York. Ég gisti svo hjá þeim í Ghettoinu í Brooklyn sem að var bara nokkuð gaman, ég er alltaf mjög hrifin af því að komast út fyrir þá landsparta sem dregur fólk vanalega að New York, þ.e.a.s. Manhattan.
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, er alltaf að vinna á fullu, mis mikið, en alltaf mikið! Eyði svo mínum frístundum með góðum vinum, og vinkonum og reyni að njóta lífsins í botn.
Ég lofa lofa lofa að vera duglegri að láta heyra í mér hérna.
Haustkveðjur frá New York!
Soffía

Vei, alltaf gaman að lesa bloggið þitt:o) Haltu þessu endilega áfram. Koss og knús
ReplyDeleteKv. Jóna Skjóna
Gott að heyra og sjá á þessum glæsi myndum að allt gangi vel tíminn er flótur að líða nú er rétt um mánuður síðan við hittumst og bráðum að koma blessuð j....
ReplyDeleteKær kv. Hákon