Wednesday, March 23, 2011

Vetur


Lehigh Valley, Allentown, PA

@ The mansion at Fontanel, Nashville, TN

In NYC
Vetur í Scarsdale
Jól í Allentown, PA
Svona eyddi ég aðfangadagskvöldi
Verið að bíða eftir limósínuni í New Jersey á aðfangadagskvöld
Klappstýrumót í New Rochelle, NY
Fjallganga í Massachusetts
Pentagon, Virginiu
Washington DC
Hvíta Húsið


Fyrst að síðasta blogg hét Haust, þá fær það næsta að heita Vetur, en með rættu ætti nú að vera komin Vor færsla. Ég gleymdi mér einhverstaðar í millitíðinni, og já það er alveg satt og rétt að ég bara gleymdi að ég ætti blogg.

Tíminn flýgur og ég eyði mest af mínum tíma í orku í börnin mín þrjú. Já ég segi bara börnin MÍN því mér líður oft eins og einstæðri þriggja barna móður. Og ég kvarta ekki, eða yfirleitt ekki. Annars getur nú tekið á að vinna svona mikið eins og ég geri, og lífið bíður oft ekki upp á margt meira en vinnu, svefn og líkamsrækt. Ég reyni þó að vera eins upptekin og ég get á mínum frídögum. Núna er ég búin að eyða svolítið meiri tíma í að skoða Pennsylvaniu. Er einnig búin að gera mér ferð til Washington DC þar ég skrapp aðeins yfir til Virginu, til að skoða Pentagon. Í febrúrar fór ég í frábæra ferð til Nashville, Tennesse, með flugstoppi í Washington DC og í Milwaukee, Wisconsin á leiðinni til baka! Þar af leiðandi hef ég aðeins víkkað sjónarhornið mitt á Bandaríkin, og næstu helgi ætla ég að eyða í Baltimore, Marylandfylki og skoða mig um þar.

Annars ætla ég að leyfa myndunum að tala!

Ætla að reyna að taka mig á í blogginu, þar sem ég er ekki einu sinni svo efnileg að láta vita af mér á facebook, þar sem fólk treystir helst á mann. En ég ætla nú ekki að lofa neinu upp í ermina á mér.


1 comment:

  1. Svo hamingjusöm - hlakka til að lesa vor bloggið í sumar;) Farðu vel með þig:* Ætla sko að hitta á þig aftur, almennilega á facebook - það var gaman:)
    x

    ReplyDelete