Thursday, April 28, 2011

Sumar

Niagara Falls að kvöldi til. Þarna verð ég í ljósadýrðinni eftir 24 klst!
Dásamlegar makkarónur!
Dramatískt móment þegar ég var að fara að smakka Red Velvet Cupcake í fyrsta skiptið.

Jæja það leið nú ekkert allt of langt á milli þess að það fór að vora og þar til sumarið kom, en ég held það megi alveg segja núna að sumarið sé komið! Veðrið er kannski ekki búið að vera neitt frábært, en það er farið að hitna vel og maður finnur fyrir því að föt og sængurver eru alltaf rök, því jú, loftið hérna er svo rosalega rakt að það er ekki mönnum bjóðandi. Og þetta er sko bara byrjunin!

En núna er ég aftur að fara að leggja land undir fót, og í þetta sinn, úr landi! Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég myndi jafnvel ferðast til annarra landa á meðan ég væri hérna. En núna er ég að fara að Niagara Falls og það var ekki hægt að hafna því tækifæri að fara á Kanadísku hliðina líka og eyða degi í Toronto. Það tók mig langan tíma að fatta að það að skreppa rétt yfir til Kanadísku hliðarinnar af Niagara falls væri actually að fara til annars lands og þurfti að redda undirskrift á DS-ið mitt í flýti og fékk það núna seinnipartinn í dag alveg á síðustu stundu! Sá þetta fyrir mér nú bara eins og að fara Austan eða Vestan megin við Dettifoss! Þetta er líka í fyrsta skipti sem ég mun fara yfir landamörk öðruvísi en fljúgandi svo þetta verður spennandi.

Ég og 7 vinkonur mínar frá Þýskalandi (já allar frá Þýskalandi, puhh) erum að fara saman og við erum að taka þetta í rútuferðarpakka frá kínversku fyrirtæki, auðvitað frá Chinatown í NYC. Þetta verður því margþjóðleg ferð, ferðast með þjóðverjum, kynnast örlítið af Kanada og eflaust borða ekkert nema kínverskan mat þar sem öll matarstopp eru yfirleitt á kínverskum buffetum í svona ferðum hjá þessum fyrirtækjum.

Myndavélin er hlaðin svo ég segi þetta bara gott í bili og við sjáumst eftir helgi þegar ég fer að hlaða myndunum inn!

Sunday, April 10, 2011

Spring










Vorið er komið og grundirnar gróa,
gilin og lækirnir fossa af brún.
Syngur í runni og senn kemur lóa,
svanir á tjarnir og þröstur í tún.

Jæja þá er loksins farið að vora hérna í New York. Í dag var í kring um 15 stiga hiti og það var hægt að njóta þess að vera úti og eyða deginum án þess að heyra einhvern kvarta yfir kulda. Fuglarnir farnir að syngja, grasið að grænka og vorandinn er allur að koma yfir mann. Deginum eyddi ég í borginni og átti frábæran dag!

Spring has arrived!
I welcome you and wish for you stay until we can say that summer has officially arrived!
Spent the day in New York City in the beautiful warm weather and had a wonderful day.

Saturday, April 2, 2011

Foods

Hamborgarinn góði

Náði því miður ekki betri mynd af hinni frægu
Philly Cheesesteak

Kjúklinga salat, kjúklinga bringur

Diskó franskar

Ostakaka frá The Cheesecake Factory

Pizza samlokan góða

Burrito Grande

Djúpsteiktar súrar gúrkur!

Þar sem mér finns ógurlega gaman að taka myndir, þá finnst mér bara allt myndefni áhugavert og skemmtilegt. Hérna eru nokkrar myndir af amerískum mat sem ég hef braggggðað síðan ég kom hingað.

Pictures of american food I've tasted. Yes I take pictures of everything, food to!