Thursday, March 31, 2011

Follow me on bloglovin

Hoping that summer is on its way. Winter storm warnings what!

Með sól í hjarta þó svo það eigi að snjóa í nótt. Tek ekki þátt í þessu lengur. Nú er komið sumar! Og hana nú.





Now you can follow me on bloglovin
click here:

Friday, March 25, 2011

I'm off

Mynd úr hverju fylki í nágrenninu. Delaware, New Jersey, Virgina, Massachusetts, Pennsylvania, Maryland og New York. Á því miður enga mynd frá Connecticut.








I'm off for the weekend so me and my good friend Lena are going to spend it in Baltimore! excitement excitement.

Sjáumst í næstu viku!
Ætla að skella mér til Baltimore um helgina og bæta einu ferðalaginu enn í safnið. Verst að stöðum í rútufjarlægð fer ört fækkandi! Rútuferð til Niagra Falls og vonandi einhverntímann Atlantic City eru þó á dagskránni. Núna fer maður að safna fyrir flugferðum og lengri ferðalögum.

Thursday, March 24, 2011

Nature
















I can take dozens of pictures of the most pointless or smallest things, something I find in the nature and think looks fascinating on a photo!

Friends














Hérna eru nokkrar myndir af vinum mínum sem ég hef eignast hérna úti..

Here are some photos of people I have been hanging out with and made friends with since I got to the States!

Wednesday, March 23, 2011

Vetur


Lehigh Valley, Allentown, PA

@ The mansion at Fontanel, Nashville, TN

In NYC
Vetur í Scarsdale
Jól í Allentown, PA
Svona eyddi ég aðfangadagskvöldi
Verið að bíða eftir limósínuni í New Jersey á aðfangadagskvöld
Klappstýrumót í New Rochelle, NY
Fjallganga í Massachusetts
Pentagon, Virginiu
Washington DC
Hvíta Húsið


Fyrst að síðasta blogg hét Haust, þá fær það næsta að heita Vetur, en með rættu ætti nú að vera komin Vor færsla. Ég gleymdi mér einhverstaðar í millitíðinni, og já það er alveg satt og rétt að ég bara gleymdi að ég ætti blogg.

Tíminn flýgur og ég eyði mest af mínum tíma í orku í börnin mín þrjú. Já ég segi bara börnin MÍN því mér líður oft eins og einstæðri þriggja barna móður. Og ég kvarta ekki, eða yfirleitt ekki. Annars getur nú tekið á að vinna svona mikið eins og ég geri, og lífið bíður oft ekki upp á margt meira en vinnu, svefn og líkamsrækt. Ég reyni þó að vera eins upptekin og ég get á mínum frídögum. Núna er ég búin að eyða svolítið meiri tíma í að skoða Pennsylvaniu. Er einnig búin að gera mér ferð til Washington DC þar ég skrapp aðeins yfir til Virginu, til að skoða Pentagon. Í febrúrar fór ég í frábæra ferð til Nashville, Tennesse, með flugstoppi í Washington DC og í Milwaukee, Wisconsin á leiðinni til baka! Þar af leiðandi hef ég aðeins víkkað sjónarhornið mitt á Bandaríkin, og næstu helgi ætla ég að eyða í Baltimore, Marylandfylki og skoða mig um þar.

Annars ætla ég að leyfa myndunum að tala!

Ætla að reyna að taka mig á í blogginu, þar sem ég er ekki einu sinni svo efnileg að láta vita af mér á facebook, þar sem fólk treystir helst á mann. En ég ætla nú ekki að lofa neinu upp í ermina á mér.