Tuesday, July 27, 2010

Scarsdale


Hverfið sem að ég er að flytja til í New York heitir Scarsdale. Það er í um 30 mínútna fjarlægð frá New York City. Lestin er í göngufæri frá húsinu mínu þannig ég geri ráð fyrir því að Manhattan verður heimsótt reglulega. Scarsdale er norðan við Manhattan í Southern Westchester. Það er líka mjög stutt að fara til Connecticut og mér býðst jafnvel að fara í skóla þar. Á myndinni hér til hliðar sé maður vel hvernig hverfi Scarsdale er. Þar er mjög fallegt, ekkert nema risastór einbýlishús og stórir garðar. Þetta er mjög öruggt hverfi og flest allt í göngufæri. Ég mun að sjálfsögðu búa í einu svona húsi og keyra um eins og kóngur í ríki mínu. Það eru líka hátt í 50 au pair í mínu umdæmi og mánaðarlega eru skipulagðir ýmsir viðburðir fyrir okkur til að hrista hópinn saman. Ég vona að á komandi ári muni ég ná að heimsækja sem flest fylki og mynda tengsl við fólk hvaðan af hnettinum.

Sunday, July 25, 2010

Mánuður


Nú er rétt rúmur mánuður þar til að ég flyt til New York. Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og ég verð eflaust farin út áður en ég veit af. Annars þarf að undirbúa margt, heilmikil pappírs vinna að sækja um Visa-ð. Svo þarf að pakka niður, mun örugglega eyða löngum tíma í það að velja og hafna því sem þarf að hafa meðferðis. Ég hætti svo að vinna 22. ágúst og þá þarf ég að flytja suður og ganga frá ýmsum lausum endum. Svo vona ég að ég sjái ykkur sem flest áður en að ég fer út, ég vil ná að kveðja ykkur öll!