Tuesday, September 28, 2010

Mánuður












Ég trúi því ekki að það sé mánuður síðan ég kom hingað út! Var bara að átta mig á því rétt í þessu og ég get ekki séð annað en að næstu 11 verði eins fljótir að líða!
Annars er allt gott í fréttum, þetta líferni hérna er allt saman eitt ævintýri. Fjölskyldan er æðisleg og ég hef áttað mig á því á síðustu dögum hvað ég er ótrúlega heppinn og þakklát fyrir það sem að ég hef.

Það sem á daga mína hefur drifið er að ég er að vinna flesta daga frá 7.30-9.30 og svo byrja ég aftur kl 14 og vinn til 20. Hingað til hafa dagarnir verið frekar þéttir því að þessi rútína kemst ekki í gang fyrr en í þessari viku. Hér er svosem ekki mikið hægt að gera utan vinnutíma, við stelpurnar reynum að fara út i göngutúr eða bíltúr á kvöldin til að fá okkur kaffibolla eða ís. Hér eru líka flestir þreyttir eftir langa daga og eiga að vera komnar í hús eftir 10 á kvöldin svo hér eru allir á sama plani. Helgarnar reynir maður svo að nýta í botn og flesta daga er haldið í borgina, eða í verslunarferðir hérna í nágrenninu.

Ég er líka búin að kynna mér næturlífið í NYC og það hefur bara verið áhugavert hingað til. Eini gallinn er að annað hvort þarf maður að taka síðustu lest heim milli 1-2 um nóttina, eða fyrstu lest um morgunin þegar klukkan er að ganga 6. Að sjálfsögðu hef ég verið á leiðinni heim í seinna laginu, ekki nokkuð vit í því að fara heim þegar fjörið er rétt að hefjast! Hér eru líka allir svo opnir að maður er ekki lengi að kynnast nýju fólki, t.d. þegar maður lendir í því að ástandi að fólkið sem að maður kom með hverfur á svipstundu og maður stendur einn eftir um miðja nótt í Manhattan. Já þá er gott að vera búin að kynnast nokkrum þeldökkum mönnum sem að hugsa vel um mann! ;)
SSvo er ekkert nema margt og spennandi framundan, meira djamm, meira versl, ferðalög og svo eru ekki nema þrjár vikur þangað til að mamma, Hákon, Jóna og Kolbrún koma og 4 vikur þangað til að Úna og Þórhalla heimsækja NYC! jeiii hlakka til. :)

Bestu kveðjur frá NY,
Soffía

Sunday, September 5, 2010

NEW YORK

Ég og Kaycee á Applebee's á Times Square :)


Jæja núna er vika síðan að ég var að gera mig tilbúna til brottfarar til USA. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur, finnst eins og ég hafi komið í gær! En fyrsta vikan er búin að vera æðisleg. Ég var sótt á flugvöllin af einhverjum voða fínum einkabílstjóra sem að stjanaði við mig alla leiðina á hótelið mitt í NJ. Hann reyndi að sýna mér og segja mér frá sem mestu, en honum fannst þó merkilegast að við gátum á tímabíli séð Atlantshafið! Alls ekki allir sem hafa notið þeirra forréttinda í gegn um tíðina hehe. En ég kynntist fullt af æðislegum stelpum þessa fyrstu daga, fór í skoðunarferð til NYC með stoppi á öllum helstu stöðum og svo var okkur boðið upp á að fara í Verslunarmiðstöðina í NJ sem að var mjög fínt. Gat verslað aðeins í H&M þar og nokkrar nauðsynjar. Amy, "host"mamma mín sótti mig svo um þrjú á fimmtudaginn upp á hótel og við brunuðum beint heim til Scarsdale. Þetta er rosalega lítill og fallegur bær, þar sem að (eins og kom áður fram í fyrra bloggi) eru EINGÖNGU risastór og mjög falleg gamaldags einbýlishús. Það tekur fimm mínútur að labba á lestarstöðina og aðeins fleiri mínútur til að komast í allar nauðsynjar. Hér í Westchester héraði er allt mjög aðgengilegt, öruggt og þægilegt. Ég á ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að labba ein hérna um á nóttinni en mér finnst þó galli að það er alls ekkert allt upplýst hérna svo það getur verið mjög drungalegt í myrkrinu.


Ég og Kaycee gátum ekki annað en beðið um mynd af okkur með þessum fola sem að beið eftir okkur í Abercrombie & Fitch á Fifth Avenue í NYC!

Börnin mín, Jocy, Nathaniel og Walker eru algjör æði. Strax á fyrsta degi bað Walker mig sem að er 18 mánaða um að taka mig upp og leika við mig. Ekkert af þeim var feimið við mig og þau eru æst í að sýna mér allt og segja mér frá öllum vinum sínum og hvað þeim finnst gaman að gera. Mér finnst líka ótrúlegt hvað mér líður strax eins og heima hjá mér, en ég held að það hafi skipt miklu máli hvað ég var búin að vera í
miklum samskiptum við fjölskylduna og kynna mér allt um þau og umhverfið í kring. Ég er líka búin að fara út á hverju kvöldi með öðrum au pair hérna í kring. Marina sem að ég er að taka við af er búin að sjá til þess að ég kynnist fullt af stelpum sem að ég er búin að gera. Hún er algjört æði og mér finnst alveg ömurlegt að hún þurfi að vera að fara! En á laugardaginn fór ég með 3 au pair til Manhattan þar sem við eyddum heilum degi í að skoða og versla. Borgin er æðisleg, óteljandi mikið af fólki alls staðar, endalaust af fallegum búðum og görðum og byggingum, en ég gæti ekki verið fegnari því að búa rétt fyrir utan alla þessa geðveiki. En ég hlakka mjög til þess sem að framundan er og ég gæti ekki verið jákvæðari og sáttari gagnvart því sem að ég er búin að upplifa nú þegar. :)

Kaycee, Marina og Anne á Times Square að kvöldi til. Engin smá mannmergð þarna hvert einasta kvöld!