Monday, November 8, 2010

Haust











Ég veit að það er allt of langt síðan síðast, en maður er bara alltaf svo latur við að setjast niður og koma einhverjum skrifum af stað. Þess vegna er líka mjög hagstætt að byrja á því að fylla bloggfærslu af nokkrum myndum. Hér má sjá myndir frá Philadelphiu, PA og ýmsum stöðum New York borgar eða úr Westchesterfylki þar sem ég bý.
Síðustu vikur hafa verið mjög góðar, þó kalt sé orðið í veðri og flest öll lauf fallin af trjánum. En um miðjan október skellti ég mér í dagsferð til Philadelphiu. Philadelphia er mjög notarleg borg, en þó svo allt öðruvísi andrúmsloft heldur en í NY. Eflaust meira Amerískt þar heldur en í innflytjendaborginni NY. Ég skoðaði helstu byggingar tengdar helstu menningarviðburðum Ameríku, eins og við var að búast. Svosem ekki margt annað að sjá þar. En ég naut mín vel þar, það var æðislegt veður og fullt af litlum görðum til að setjast í og virða umhverfið fyrir sér.
Helgin eftir það kom svo hluti af fjölskyldunni og áttum við dýrmætar stundir saman í New York City. Það var ótrúlega gott að eyða tíma með fjölskyldunni sinni, þó það hafi ekki verið nema tæpir þrír dagar. Ég sá til þess að þau keyrðu sig gjörsamlega út með stanslausri göngu þvert yfir borgina, svona svo að þau myndu alveg örugglega sjá allt! Og sumt oftar en einu sinni!
Ég átti einnig mjög góða helgi með Únu og Þórhöllu, en við eyddum saman hluta af Halloween helginni hérna í New York. Ég gisti svo hjá þeim í Ghettoinu í Brooklyn sem að var bara nokkuð gaman, ég er alltaf mjög hrifin af því að komast út fyrir þá landsparta sem dregur fólk vanalega að New York, þ.e.a.s. Manhattan.
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, er alltaf að vinna á fullu, mis mikið, en alltaf mikið! Eyði svo mínum frístundum með góðum vinum, og vinkonum og reyni að njóta lífsins í botn.

Ég lofa lofa lofa að vera duglegri að láta heyra í mér hérna.
Haustkveðjur frá New York!
Soffía

Tuesday, October 5, 2010

Nýjar venjur













Ég get ekki sagt annað en að það venjist ágætlega að láta aðra þrífa upp eftir mig skítinn. Nú sit ég upp í rúmi í mínum mestu makindum, á meðan konur stússast í kring um mig á launum við að þurrka af, hreinsa og bóna herbergið mitt. Ég að sjálfsögðu hef snirtilegt í kring um mig (jú að sjálfsögðu svo að þær geta gengið beint í verkið og náð öllum rykblettum) en það er líka einkar þægilegt að þurfa aldrei að hafa áhyggjur af því hvort það sé rykugt hér eða þar. Hingað koma þær einu sinni í viku og taka húsið algjörlega í gegn, þrífa rúmfötin og setja þau á aftur og svo framvegis.

Núna er enn ein vikan liðin hérna í New York og ég bara trúi því ekki að það séu akkúrat fimm vikur í dag síðan ég lagði land undir fót og mætti hingað á svæðið. En vikan var þokkaleg, löng og ströng vinnulega séð, en samt sem áður góð. Ég eyddi öllum laugardeginum í að taka myndir í Manhattan, en þangað fór ég með Anne vinkonu minni frá Þýskalandi. Við gengum niður Manhattan frá Times Square og alveg að Battery Park eða alveg eins sunnarlega að sjó eins og hugsast getur. Við tókum einnig smá útúrdúr til að skoða Brooklyn Bridge, China Town, Viðskiptahverfið og ýmislegt fleira. Hér er bara brot af þeim 500 myndum sem að ég tók þennan dag, en fleiri eru að finna á fésbókinni.

Tuesday, September 28, 2010

Mánuður












Ég trúi því ekki að það sé mánuður síðan ég kom hingað út! Var bara að átta mig á því rétt í þessu og ég get ekki séð annað en að næstu 11 verði eins fljótir að líða!
Annars er allt gott í fréttum, þetta líferni hérna er allt saman eitt ævintýri. Fjölskyldan er æðisleg og ég hef áttað mig á því á síðustu dögum hvað ég er ótrúlega heppinn og þakklát fyrir það sem að ég hef.

Það sem á daga mína hefur drifið er að ég er að vinna flesta daga frá 7.30-9.30 og svo byrja ég aftur kl 14 og vinn til 20. Hingað til hafa dagarnir verið frekar þéttir því að þessi rútína kemst ekki í gang fyrr en í þessari viku. Hér er svosem ekki mikið hægt að gera utan vinnutíma, við stelpurnar reynum að fara út i göngutúr eða bíltúr á kvöldin til að fá okkur kaffibolla eða ís. Hér eru líka flestir þreyttir eftir langa daga og eiga að vera komnar í hús eftir 10 á kvöldin svo hér eru allir á sama plani. Helgarnar reynir maður svo að nýta í botn og flesta daga er haldið í borgina, eða í verslunarferðir hérna í nágrenninu.

Ég er líka búin að kynna mér næturlífið í NYC og það hefur bara verið áhugavert hingað til. Eini gallinn er að annað hvort þarf maður að taka síðustu lest heim milli 1-2 um nóttina, eða fyrstu lest um morgunin þegar klukkan er að ganga 6. Að sjálfsögðu hef ég verið á leiðinni heim í seinna laginu, ekki nokkuð vit í því að fara heim þegar fjörið er rétt að hefjast! Hér eru líka allir svo opnir að maður er ekki lengi að kynnast nýju fólki, t.d. þegar maður lendir í því að ástandi að fólkið sem að maður kom með hverfur á svipstundu og maður stendur einn eftir um miðja nótt í Manhattan. Já þá er gott að vera búin að kynnast nokkrum þeldökkum mönnum sem að hugsa vel um mann! ;)
SSvo er ekkert nema margt og spennandi framundan, meira djamm, meira versl, ferðalög og svo eru ekki nema þrjár vikur þangað til að mamma, Hákon, Jóna og Kolbrún koma og 4 vikur þangað til að Úna og Þórhalla heimsækja NYC! jeiii hlakka til. :)

Bestu kveðjur frá NY,
Soffía

Sunday, September 5, 2010

NEW YORK

Ég og Kaycee á Applebee's á Times Square :)


Jæja núna er vika síðan að ég var að gera mig tilbúna til brottfarar til USA. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur, finnst eins og ég hafi komið í gær! En fyrsta vikan er búin að vera æðisleg. Ég var sótt á flugvöllin af einhverjum voða fínum einkabílstjóra sem að stjanaði við mig alla leiðina á hótelið mitt í NJ. Hann reyndi að sýna mér og segja mér frá sem mestu, en honum fannst þó merkilegast að við gátum á tímabíli séð Atlantshafið! Alls ekki allir sem hafa notið þeirra forréttinda í gegn um tíðina hehe. En ég kynntist fullt af æðislegum stelpum þessa fyrstu daga, fór í skoðunarferð til NYC með stoppi á öllum helstu stöðum og svo var okkur boðið upp á að fara í Verslunarmiðstöðina í NJ sem að var mjög fínt. Gat verslað aðeins í H&M þar og nokkrar nauðsynjar. Amy, "host"mamma mín sótti mig svo um þrjú á fimmtudaginn upp á hótel og við brunuðum beint heim til Scarsdale. Þetta er rosalega lítill og fallegur bær, þar sem að (eins og kom áður fram í fyrra bloggi) eru EINGÖNGU risastór og mjög falleg gamaldags einbýlishús. Það tekur fimm mínútur að labba á lestarstöðina og aðeins fleiri mínútur til að komast í allar nauðsynjar. Hér í Westchester héraði er allt mjög aðgengilegt, öruggt og þægilegt. Ég á ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að labba ein hérna um á nóttinni en mér finnst þó galli að það er alls ekkert allt upplýst hérna svo það getur verið mjög drungalegt í myrkrinu.


Ég og Kaycee gátum ekki annað en beðið um mynd af okkur með þessum fola sem að beið eftir okkur í Abercrombie & Fitch á Fifth Avenue í NYC!

Börnin mín, Jocy, Nathaniel og Walker eru algjör æði. Strax á fyrsta degi bað Walker mig sem að er 18 mánaða um að taka mig upp og leika við mig. Ekkert af þeim var feimið við mig og þau eru æst í að sýna mér allt og segja mér frá öllum vinum sínum og hvað þeim finnst gaman að gera. Mér finnst líka ótrúlegt hvað mér líður strax eins og heima hjá mér, en ég held að það hafi skipt miklu máli hvað ég var búin að vera í
miklum samskiptum við fjölskylduna og kynna mér allt um þau og umhverfið í kring. Ég er líka búin að fara út á hverju kvöldi með öðrum au pair hérna í kring. Marina sem að ég er að taka við af er búin að sjá til þess að ég kynnist fullt af stelpum sem að ég er búin að gera. Hún er algjört æði og mér finnst alveg ömurlegt að hún þurfi að vera að fara! En á laugardaginn fór ég með 3 au pair til Manhattan þar sem við eyddum heilum degi í að skoða og versla. Borgin er æðisleg, óteljandi mikið af fólki alls staðar, endalaust af fallegum búðum og görðum og byggingum, en ég gæti ekki verið fegnari því að búa rétt fyrir utan alla þessa geðveiki. En ég hlakka mjög til þess sem að framundan er og ég gæti ekki verið jákvæðari og sáttari gagnvart því sem að ég er búin að upplifa nú þegar. :)

Kaycee, Marina og Anne á Times Square að kvöldi til. Engin smá mannmergð þarna hvert einasta kvöld!

Friday, August 6, 2010

To Buy..

.. When I get to the States.


Since before my Graduation I have
been saving for a Canon EOS 50D.
So that's gonna be one of my first
purchases in NY.


.. And a new cell phone!
I have been dreaming of geting myself a Blackberry and I think I will make that wish come true. Which one should I pick!?!? So many different types and qualities.




What I want to buy before I leave, but shouldn't....


Those Icelandic Designer shoes by Kron By KronKron have been following me day and night, in my nightdreams and daydreams!! I think I wont be able to leave Iceland without them, but they are so expensive. Lets just hope that they will be sold out when I get back to Reykjavik. And don't remind me that I can buy them online.
Apart from that. Now its only 24 days until I arrive in JFK airport. The only paperwork left is my Project for my Orientation in New Jersey. Then I will have my interview in the US Embassy on the 23rd of August. Then I am more or less ready to go. Packing and saying goodbyes will be a little bit last minute and don't mention that I will go to my dentist just an hour or two before I leave to the airport. My last week will be really busy since I will be working until the 22nd of August. I will drive south the same day and then the nerves can kick in. I will be relaxed until then! :)
Soffía Kristín

Tuesday, July 27, 2010

Scarsdale


Hverfið sem að ég er að flytja til í New York heitir Scarsdale. Það er í um 30 mínútna fjarlægð frá New York City. Lestin er í göngufæri frá húsinu mínu þannig ég geri ráð fyrir því að Manhattan verður heimsótt reglulega. Scarsdale er norðan við Manhattan í Southern Westchester. Það er líka mjög stutt að fara til Connecticut og mér býðst jafnvel að fara í skóla þar. Á myndinni hér til hliðar sé maður vel hvernig hverfi Scarsdale er. Þar er mjög fallegt, ekkert nema risastór einbýlishús og stórir garðar. Þetta er mjög öruggt hverfi og flest allt í göngufæri. Ég mun að sjálfsögðu búa í einu svona húsi og keyra um eins og kóngur í ríki mínu. Það eru líka hátt í 50 au pair í mínu umdæmi og mánaðarlega eru skipulagðir ýmsir viðburðir fyrir okkur til að hrista hópinn saman. Ég vona að á komandi ári muni ég ná að heimsækja sem flest fylki og mynda tengsl við fólk hvaðan af hnettinum.

Sunday, July 25, 2010

Mánuður


Nú er rétt rúmur mánuður þar til að ég flyt til New York. Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og ég verð eflaust farin út áður en ég veit af. Annars þarf að undirbúa margt, heilmikil pappírs vinna að sækja um Visa-ð. Svo þarf að pakka niður, mun örugglega eyða löngum tíma í það að velja og hafna því sem þarf að hafa meðferðis. Ég hætti svo að vinna 22. ágúst og þá þarf ég að flytja suður og ganga frá ýmsum lausum endum. Svo vona ég að ég sjái ykkur sem flest áður en að ég fer út, ég vil ná að kveðja ykkur öll!