Ég og Kaycee á Applebee's á Times Square :)
Ég og Kaycee gátum ekki annað en beðið um mynd af okkur með þessum fola sem að beið eftir okkur í Abercrombie & Fitch á Fifth Avenue í NYC!
Börnin mín, Jocy, Nathaniel og Walker eru algjör æði. Strax á fyrsta degi bað Walker mig sem að er 18 mánaða um að taka mig upp og leika við mig. Ekkert af þeim var feimið við mig og þau eru æst í að sýna mér allt og segja mér frá öllum vinum sínum og hvað þeim finnst gaman að gera. Mér finnst líka ótrúlegt hvað mér líður strax eins og heima hjá mér, en ég held að það hafi skipt miklu máli hvað ég var búin að vera í
miklum samskiptum við fjölskylduna og kynna mér allt um þau og umhverfið í kring. Ég er líka búin að fara út á hverju kvöldi með öðrum au pair hérna í kring. Marina sem að ég er að taka við af er búin að sjá til þess að ég kynnist fullt af stelpum sem að ég er búin að gera. Hún er algjört æði og mér finnst alveg ömurlegt að hún þurfi að vera að fara! En á laugardaginn fór ég með 3 au pair til Manhattan þar sem við eyddum heilum degi í að skoða og versla. Borgin er æðisleg, óteljandi mikið af fólki alls staðar, endalaust af fallegum búðum og görðum og byggingum, en ég gæti ekki verið fegnari því að búa rétt fyrir utan alla þessa geðveiki. En ég hlakka mjög til þess sem að framundan er og ég gæti ekki verið jákvæðari og sáttari gagnvart því sem að ég er búin að upplifa nú þegar. :)
Kaycee, Marina og Anne á Times Square að kvöldi til. Engin smá mannmergð þarna hvert einasta kvöld!
Hey! Although I don't understand any word except some names, I'd like to have ur NYC pictures :)
ReplyDeleteThey are all on facebook darling! :)
ReplyDeleteÞetta er Magnað !!! sakn á þig :*
ReplyDeleteOhh frábært að sjá að allt gengur vel!:*
ReplyDeleteFrábært Soffía mín ;) gangi þér vel og það er nauðsynlegt að vera í sambandi við aðra aupair ;)Hef verið í sömu stöðu og þú en fyrir mörgum árum og er þetta bara meiriháttar, veistu að ég fá fiðring í magann af spenningi fyrir þína hönd. Fylgist með þér sæta og farðu þér hægt, ekki í nein hættuleg hverfi þó svo það sé spennandi og ekki hættulega garða ;) kveðja Fríða Birna
ReplyDeleteÆði:o)
ReplyDeleteKv. Jóna Björk
Þetta er svo spennandi hjá þér og þetta á eftir að vera svo gaman!!
ReplyDeleteEn takk fyrir skype spjallið áðn og það var yndislegt að heyra í þér áðan***
Sakna þín svaka mikið!!!
Kv. Begga
Hæ Soffía Gaman að heyra(lesa) hvað allt gengur vel hjá þér og frábært að þú skulir strax vera búin að kynnast fólki þarna! það verður gaman að heyra frá þér einhvertíman síðar.. við filgjumst spent með blogginu þínu :D
ReplyDeleteNjótu alls þess sem er að gerast, og taktu ævintýrinu fagnandi!
Gott allt saman;) Applebee´s er ÆÐI....ég ætla að fara með stefán þangað þegar við komum til NYC. kyss og sakn* Hilda
ReplyDeleteÓ mæææææ!! ég öfunda þig svo elsku Soffía, ég þráááái að komast aðeins til NYC!! kem 150% næsta sumar!! Veit ekki hvort að Hinrik komi með því hann verður örugglega í golf ferð! en mér er aaaalveg sama! ;) hehe
ReplyDeletehafðu það gott KISSS
Heiða
Hey ég vissi ekkert að þú værir með svona blogg um allt sem þú er að gera.....geggjað! Ætla að fylgjast með þér ;)
ReplyDeleteHafðu það súper flott og gott ;)
Guðrún Elísabet