Sunday, September 5, 2010

NEW YORK

Ég og Kaycee á Applebee's á Times Square :)


Jæja núna er vika síðan að ég var að gera mig tilbúna til brottfarar til USA. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur, finnst eins og ég hafi komið í gær! En fyrsta vikan er búin að vera æðisleg. Ég var sótt á flugvöllin af einhverjum voða fínum einkabílstjóra sem að stjanaði við mig alla leiðina á hótelið mitt í NJ. Hann reyndi að sýna mér og segja mér frá sem mestu, en honum fannst þó merkilegast að við gátum á tímabíli séð Atlantshafið! Alls ekki allir sem hafa notið þeirra forréttinda í gegn um tíðina hehe. En ég kynntist fullt af æðislegum stelpum þessa fyrstu daga, fór í skoðunarferð til NYC með stoppi á öllum helstu stöðum og svo var okkur boðið upp á að fara í Verslunarmiðstöðina í NJ sem að var mjög fínt. Gat verslað aðeins í H&M þar og nokkrar nauðsynjar. Amy, "host"mamma mín sótti mig svo um þrjú á fimmtudaginn upp á hótel og við brunuðum beint heim til Scarsdale. Þetta er rosalega lítill og fallegur bær, þar sem að (eins og kom áður fram í fyrra bloggi) eru EINGÖNGU risastór og mjög falleg gamaldags einbýlishús. Það tekur fimm mínútur að labba á lestarstöðina og aðeins fleiri mínútur til að komast í allar nauðsynjar. Hér í Westchester héraði er allt mjög aðgengilegt, öruggt og þægilegt. Ég á ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að labba ein hérna um á nóttinni en mér finnst þó galli að það er alls ekkert allt upplýst hérna svo það getur verið mjög drungalegt í myrkrinu.


Ég og Kaycee gátum ekki annað en beðið um mynd af okkur með þessum fola sem að beið eftir okkur í Abercrombie & Fitch á Fifth Avenue í NYC!

Börnin mín, Jocy, Nathaniel og Walker eru algjör æði. Strax á fyrsta degi bað Walker mig sem að er 18 mánaða um að taka mig upp og leika við mig. Ekkert af þeim var feimið við mig og þau eru æst í að sýna mér allt og segja mér frá öllum vinum sínum og hvað þeim finnst gaman að gera. Mér finnst líka ótrúlegt hvað mér líður strax eins og heima hjá mér, en ég held að það hafi skipt miklu máli hvað ég var búin að vera í
miklum samskiptum við fjölskylduna og kynna mér allt um þau og umhverfið í kring. Ég er líka búin að fara út á hverju kvöldi með öðrum au pair hérna í kring. Marina sem að ég er að taka við af er búin að sjá til þess að ég kynnist fullt af stelpum sem að ég er búin að gera. Hún er algjört æði og mér finnst alveg ömurlegt að hún þurfi að vera að fara! En á laugardaginn fór ég með 3 au pair til Manhattan þar sem við eyddum heilum degi í að skoða og versla. Borgin er æðisleg, óteljandi mikið af fólki alls staðar, endalaust af fallegum búðum og görðum og byggingum, en ég gæti ekki verið fegnari því að búa rétt fyrir utan alla þessa geðveiki. En ég hlakka mjög til þess sem að framundan er og ég gæti ekki verið jákvæðari og sáttari gagnvart því sem að ég er búin að upplifa nú þegar. :)

Kaycee, Marina og Anne á Times Square að kvöldi til. Engin smá mannmergð þarna hvert einasta kvöld!

11 comments:

  1. Hey! Although I don't understand any word except some names, I'd like to have ur NYC pictures :)

    ReplyDelete
  2. They are all on facebook darling! :)

    ReplyDelete
  3. Þetta er Magnað !!! sakn á þig :*

    ReplyDelete
  4. Ohh frábært að sjá að allt gengur vel!:*

    ReplyDelete
  5. Frábært Soffía mín ;) gangi þér vel og það er nauðsynlegt að vera í sambandi við aðra aupair ;)Hef verið í sömu stöðu og þú en fyrir mörgum árum og er þetta bara meiriháttar, veistu að ég fá fiðring í magann af spenningi fyrir þína hönd. Fylgist með þér sæta og farðu þér hægt, ekki í nein hættuleg hverfi þó svo það sé spennandi og ekki hættulega garða ;) kveðja Fríða Birna

    ReplyDelete
  6. Æði:o)
    Kv. Jóna Björk

    ReplyDelete
  7. Bergljót FriðbjarnardóttirSeptember 6, 2010 at 2:27 PM

    Þetta er svo spennandi hjá þér og þetta á eftir að vera svo gaman!!
    En takk fyrir skype spjallið áðn og það var yndislegt að heyra í þér áðan***
    Sakna þín svaka mikið!!!
    Kv. Begga

    ReplyDelete
  8. Hæ Soffía Gaman að heyra(lesa) hvað allt gengur vel hjá þér og frábært að þú skulir strax vera búin að kynnast fólki þarna! það verður gaman að heyra frá þér einhvertíman síðar.. við filgjumst spent með blogginu þínu :D

    Njótu alls þess sem er að gerast, og taktu ævintýrinu fagnandi!

    ReplyDelete
  9. Gott allt saman;) Applebee´s er ÆÐI....ég ætla að fara með stefán þangað þegar við komum til NYC. kyss og sakn* Hilda

    ReplyDelete
  10. Ó mæææææ!! ég öfunda þig svo elsku Soffía, ég þráááái að komast aðeins til NYC!! kem 150% næsta sumar!! Veit ekki hvort að Hinrik komi með því hann verður örugglega í golf ferð! en mér er aaaalveg sama! ;) hehe
    hafðu það gott KISSS
    Heiða

    ReplyDelete
  11. Hey ég vissi ekkert að þú værir með svona blogg um allt sem þú er að gera.....geggjað! Ætla að fylgjast með þér ;)
    Hafðu það súper flott og gott ;)
    Guðrún Elísabet

    ReplyDelete