Ég kynntist þessum ágæta manni sem að kynnir sig sem Al+Phonz eitt kvöld þegar ég var á göngu í Central Park í vor. Hann stefnir langt sem tónlistarmaður og hefur allt til brunns að bera. Hann vinnur í sínu efni sjálfur, semur, spilar á hljóðfærin, tekur upp, gerir tónlistarmyndbönd, og hefur unnið með fjölda tónlistarmanna. Ég tók hann í photoshoot í stúdíóinu hans í Brooklyn í byrjun sumars og núna er hann á fullu að kynna efnið sitt og vekja athygli á sér.
Hér er kynningarmyndband af því sem að er í vændum og svo hvað þig getið séð við hverja hann er að eiga! :) Ég kem svo með eitthvað meira krassandi þegar eitthvað efni er tilbúið! Hann kynnir sig ýmist sem Al+Phonz (þegar á við sólóferil) og Art Wrecca (þegar hann hefur verið að dj-ast ofl).
No comments:
Post a Comment