Niagara Falls að kvöldi til. Þarna verð ég í ljósadýrðinni eftir 24 klst!
Dásamlegar makkarónur!
Dramatískt móment þegar ég var að fara að smakka Red Velvet Cupcake í fyrsta skiptið.
Jæja það leið nú ekkert allt of langt á milli þess að það fór að vora og þar til sumarið kom, en ég held það megi alveg segja núna að sumarið sé komið! Veðrið er kannski ekki búið að vera neitt frábært, en það er farið að hitna vel og maður finnur fyrir því að föt og sængurver eru alltaf rök, því jú, loftið hérna er svo rosalega rakt að það er ekki mönnum bjóðandi. Og þetta er sko bara byrjunin!
En núna er ég aftur að fara að leggja land undir fót, og í þetta sinn, úr landi! Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég myndi jafnvel ferðast til annarra landa á meðan ég væri hérna. En núna er ég að fara að Niagara Falls og það var ekki hægt að hafna því tækifæri að fara á Kanadísku hliðina líka og eyða degi í Toronto. Það tók mig langan tíma að fatta að það að skreppa rétt yfir til Kanadísku hliðarinnar af Niagara falls væri actually að fara til annars lands og þurfti að redda undirskrift á DS-ið mitt í flýti og fékk það núna seinnipartinn í dag alveg á síðustu stundu! Sá þetta fyrir mér nú bara eins og að fara Austan eða Vestan megin við Dettifoss! Þetta er líka í fyrsta skipti sem ég mun fara yfir landamörk öðruvísi en fljúgandi svo þetta verður spennandi.
Ég og 7 vinkonur mínar frá Þýskalandi (já allar frá Þýskalandi, puhh) erum að fara saman og við erum að taka þetta í rútuferðarpakka frá kínversku fyrirtæki, auðvitað frá Chinatown í NYC. Þetta verður því margþjóðleg ferð, ferðast með þjóðverjum, kynnast örlítið af Kanada og eflaust borða ekkert nema kínverskan mat þar sem öll matarstopp eru yfirleitt á kínverskum buffetum í svona ferðum hjá þessum fyrirtækjum.

Myndavélin er hlaðin svo ég segi þetta bara gott í bili og við sjáumst eftir helgi þegar ég fer að hlaða myndunum inn!
Hlakka til að sjá myndir og aftur góða skemmtun:o)
ReplyDeleteKv. Jóna Björk