Tuesday, September 28, 2010

Mánuður












Ég trúi því ekki að það sé mánuður síðan ég kom hingað út! Var bara að átta mig á því rétt í þessu og ég get ekki séð annað en að næstu 11 verði eins fljótir að líða!
Annars er allt gott í fréttum, þetta líferni hérna er allt saman eitt ævintýri. Fjölskyldan er æðisleg og ég hef áttað mig á því á síðustu dögum hvað ég er ótrúlega heppinn og þakklát fyrir það sem að ég hef.

Það sem á daga mína hefur drifið er að ég er að vinna flesta daga frá 7.30-9.30 og svo byrja ég aftur kl 14 og vinn til 20. Hingað til hafa dagarnir verið frekar þéttir því að þessi rútína kemst ekki í gang fyrr en í þessari viku. Hér er svosem ekki mikið hægt að gera utan vinnutíma, við stelpurnar reynum að fara út i göngutúr eða bíltúr á kvöldin til að fá okkur kaffibolla eða ís. Hér eru líka flestir þreyttir eftir langa daga og eiga að vera komnar í hús eftir 10 á kvöldin svo hér eru allir á sama plani. Helgarnar reynir maður svo að nýta í botn og flesta daga er haldið í borgina, eða í verslunarferðir hérna í nágrenninu.

Ég er líka búin að kynna mér næturlífið í NYC og það hefur bara verið áhugavert hingað til. Eini gallinn er að annað hvort þarf maður að taka síðustu lest heim milli 1-2 um nóttina, eða fyrstu lest um morgunin þegar klukkan er að ganga 6. Að sjálfsögðu hef ég verið á leiðinni heim í seinna laginu, ekki nokkuð vit í því að fara heim þegar fjörið er rétt að hefjast! Hér eru líka allir svo opnir að maður er ekki lengi að kynnast nýju fólki, t.d. þegar maður lendir í því að ástandi að fólkið sem að maður kom með hverfur á svipstundu og maður stendur einn eftir um miðja nótt í Manhattan. Já þá er gott að vera búin að kynnast nokkrum þeldökkum mönnum sem að hugsa vel um mann! ;)
SSvo er ekkert nema margt og spennandi framundan, meira djamm, meira versl, ferðalög og svo eru ekki nema þrjár vikur þangað til að mamma, Hákon, Jóna og Kolbrún koma og 4 vikur þangað til að Úna og Þórhalla heimsækja NYC! jeiii hlakka til. :)

Bestu kveðjur frá NY,
Soffía

4 comments:

  1. vá jáh trúi ekki að það sé mánuður :O... en gaman að lesa og haltu áfram að hafa það svona gott :) miss you

    ReplyDelete
  2. Þeldökku mennirnir hehe.. Flott blogg hjá þér elskan! Mikið rétt flest allar þreyttir eftir dagana með kids... En ótrúlega gaman að sjá blogg ;)

    ReplyDelete
  3. Frábært að þú skildir blogga. Hlakka ekkert smá til að sjá þig:o)

    Kv. Jóna Björk

    ReplyDelete
  4. Hæ Soffía, það var frábært að upplifa N.Y. með þér gangi þér allt í haginn sjáumst síðar, Kær kveðja

    Hákon

    ReplyDelete